Blaður út í eitt

17.02.2008 13:35:24 / pernilla

Flutt

Þá er ég flutt á www.danjensen.blog.is
Gangi kjellu vel þar,

Love and hugs... Hulla Pulla

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 09:34:52 / pernilla

Allt í ljóma

Hér gengur lífið sinn vanagang. Allt stútfullt af kanínukjánum, sem ég hef enga lyst á lengur að rækta til átu 8| Ótrúlega fallegir.
Hænurnar eru aftur farnar að ganga lausar eftir mikla innilokun í vetur.
Og sumarið er rétt handan við hornið. Allt orðið stúfullt af blómum og sólin skín í heiði. Bla bla.

Í kvöld er svo kvöld kveldana. Hehehehe. Vinnustaðarpartý. Það voru nú heldur lélegar undirtektir og við bara 6 sem erum svo skemmtilegar að vilja mæta. Þannig að ég spái því að kvödið verði geðveikislega skemmtilegt. Frétti líka að Mæja ætlaði að vera með smá show. Magadans eða Limbó. Spennandi að sjá hvernig það tekst.

Nohhh nú er farin að velta upp úr mér þvælan, svo ég set punkt hérna. og vona að ég nái að blogga á morgunn þrátt fyrir áætlaða þynku. :haha:

Lifðu í lukku, en ekki í krukku

» 5 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 10:02:21 / pernilla

Til umhugsunar

Ég labbaði í bæinn, mér létt í skapi var
að líta inn á búllur samkvæmt vana.
Mér fannst ég vera þyrstur, fékk mér bjórglas inni á bar
og byrjaði að spá í nátthrafnana.


Þá settist hjá mér stúlka, hún sagðist vera sautján.
Hún sagði ei margt að vísu , en fylgdist með.
Ég gaf mér nægan tíma, því oft er það mín áþján
að ætla að gefa ráð og elginn veð.

Við töluðum um bilið, sem byggjum við af  hvöt,
um bilið milli aldurs sem er gríma.
Við gefa viljum börnum okkar græna skóga og föt
en gleymum oft því dýrmætasta:  Tíma.


Þá kom hún mér á óvart, því er ég fór að inna
eftir hennar skoðunum, ef hefði hún einhverjar.
Það litla sem hún sagði, ég verð að viðurkenna
vakti mig til umhugsunar á því hver ég var.

Ég held við ættum stundum að hlusta aðeins betur
á hugrenningar þeirra, sem erfa skulu land,
því kannski er næsta kynslóð, kynslóðin sem getur  
komið fram með svörin, þar sem  sigldum við í strand.


Okkur kann að virðast, að ungdómurinn nú
sé einskis nýtur, reki í lífsins gjólum.
En gleymum ekki staðreyndum, því staðreyndinn er sú: 
Það vorum ég og þú, sem upp þau ólum.

Ekki vitlaus texti.

Góða helgi.

 
 

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 14:27:23 / pernilla

Draumur í dós

Vegna fjölda áskorana er hér  linkur á næsta bústað sem ég mun fjárfesta í. Svo framalega sem ég verð ekki búin að skipta um skoðun.

http://www.silvercoasthouses.com/en/?cat=83&detalhe=219

Bara draumur :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 20:28:57 / pernilla

Pínu blogg fyrir svefninn.

Baunabúar voru að vinna þjóðverja í handbolta :haha: Hrikalega spennandi leikur og ég var að missa mig í smsum til Kirsten(ar) minnar. Hún var farin að ákalla guð - sem mátti greinilega vera að því að sinna henni -  Allavega unnu danir. Skoruðu síðasta markið með víti á síðustu sekúndunni. Gríðaleg spanna og ég gaf frá mér hljóð sem ég vissi ekki að ég ætti til.

Ég er búin að átta mig á að ég á GÓÐAN vinnuveitanda. Elska hana :haha:. Vissi reyndar að hún væri frábær, en ekki svona frábær. Búin að vera á tveimur fundum á þessu ári og allt lofar góðu.
Ég fór greinilega ekki í námið mitt til að horfa upp á gamalmenni hrörna í einsemd meðan ég skúra gólf. Ég á líka frábæra vinnufélaga og grúppuleiðara (vona að þú sjáir þetta Maja) :haha:. En meira um það síðar.

Fann bleikan kastala í Portúgal (aftur) (hinn reyndar í Póllandi) þegar ég var að flæjast um í bloggheimum. Langar í hann.
Elska draumórastarfsemi.

Hér lítur frekar vorlega út. Fyrir utan ógeðis rok og rigningu.
Gulu villublómin sem spretta upp í vegkanntinum hjá okkur, yfirleitt  í mars, eru komin. Og ég svo glöð. Hlakka endalaust til sumarsins.

Mamma að flýta sér að láta sér batna, svo hún geti komið út til okkar :D
Atli að flýta sér að læra allt milli himmins og jarðar, svo hann geti fermst :D
Og ég að flýta mér að nota hrukkukrem og losa mig við ölvömb mikla, svo ég geti verið í bikiníi á ströndinni í sumar. Gengur bara asskoti vel.

Ég búin að komast að því að "árshátíð er ekki þýdd årshøjtid". 8| Heldur "personalfest hjá Maju" :haha: Og ef þú ert að spila Asna, við dani, þá þýðuru ekki Þrist sem Trist. Það þýðir nebblaga "leið"... Alltaf að læra eitthvað nýtt.

Og Villi Vill stendur alltaf fyrir sínu. Diskarnir sem við fengum frá Boggu og Begga í jólagjöf eru bara þvílíkt að gera sig í bílnum. Jói syngur hástöfum eð en vill þó helst hlsta á -bíddu pabbi, litla tónlistarmanninn og einshljóðsfærissinfoníuhljómveit (sex strengja)

Pas godt på jer selv and I love ya allesammen... Until næste gang... Hull Pull


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 08:52:01 / pernilla

Feministi... Hvað er nú það???

Ég hef að undanförnu verið að lesa hin ýmsu blogg hjá fólki (sem ég þekki ekki neitt) og einhverra hluta vegna er mikið rætt um feminista.
Nú er ég ekkert voðalega mikið inn í því sem er að gerast þarna heima, og hef ekkert mikið verið að velta mér upp úr feministum, nema núna síðustu daga.
Fólk virðist ekki allveg vera sammála um hvað feministi er og hvort það sjálft er feministi eða ekki.
Er feministi eitthvað eitt? Er feminsti einhver hreyfing eða bara lífsskoðun.
Er feministi og rauðsokka til dæmis það sama???
Fólk virðist hafa mjög misjafnar skoðanir á þessu öllu saman og hver túlkar fyrir sig.
Ég er sjálf voðalega hlynt jafnrétti, innan eðlilegra marka auðvitað.


Að mínu mati á hver og einn að hafa rétt til að taka sjálfstæðar ákvarðanir, hvort sem það er karl eða kona.
Auðvitað finnst mér að bæði kynin eigi að hafa sömu laun fyrir sömu vinnu og allt það, en ég vill samt fá að vera kona í friði og að karlar fái að vera karlar í friði.
Kynin eru ólík að eðlisfari, þó að alltaf séu undantekningar, og mér finnst ofsalega mikilvægt að það verði þannig áfram.
Mér finnst verkaskipting hjá kynunum í góðu lagi ef báðir aðilar eru sáttir.
Konan sér um þvottinn á heimilinu og karlinn sér um bílinn.
J


Ég vill að guð sé áfram “hann“.
Ég vill að jólasveinarnir séu áfram karlkyns.
Ég vill að ráðherrar séu áfram herrar en ekki frúr, þó að kona sé í embættinu. Væri samt gaman að breyta ráðherra í herra jólasveinn. Fjármálajólasveinn, utanríkis- jólasveinn. Mundi svo vel passa.

Ef við Eiki erum í bíltúr og springur á bílnum, þá fer Eiki út og skiptir um dekk. Því ég er kona!
Ef klósettið okkar stíflast, þá er það Eiki greyið sem losar það, því hann er karlmaðurinn á heimilinu.
Ef ég finn dauða rottu inn í þvottahúsi þá er það hann Eiki minn sem fjarlægir hana, þó að mínir kettir hafi komið með hana inn, því hann er karlmaður.
Ef að þarf að flytja til stóra þunga hluti er það Eiki sem sér um það, því hann er svo sterkur og mikið karlmenni.
Ef er ógeðleg padda hér inni og ég „konan“ vill losna við hana út, þá er það Eiki sem tekur það að sér, nema ef pabbi minn er í heimsókn, þá gerir pabbi það. En hann er líka eldri karlmaður en Eiki. :haha:
Ef þarf að sauma gardínur þá geri ég það, því ég er konan á heimilinu.
Ef þarf að baka fyrir skólann eða afmæli þá sé ég um það.
Ef þarf að gefa barninu okkar brjóst, þá tek ég það að mér með glöðu geði, því ég er jú konan.
Ef þarf að umpotta blómunum okkar þá geri ég það. Því mér finnst það konuverk.
Ef þarf að strauja þvott, sem er reyndar i lágmarki því mér finnst það svo ógeðslega leiðinlegt, þá geri ég það bara og fíla mig eins og konu.

Allt hér að ofan gæti vel verið öðruvísi. Eiki getur vel straujað og ég get vel skipt um dekk.
Það er hinsvegar ekki málið. Við höfum bara gert þegjandi samkomulag og erum voðalega sátt við þetta allt.
Eiki sér meira og minna um eldamennsku hér á heimilinu, þó mér finnist það konuverk. Hann býr bara til svo askoti góðan mat.
Ég hef hinsvegar hingað til tekið að mér að mála það sem mála þarf, þó mér finnist það eiginlega vera karlmannsverk.
Mér finnst sanngjarnt að karlar og konur fái sömu laun fyrir sömu vinnu. Samt eru þau stundum í sömu vinnu en öll erfiðis vinnan bitnar meira á karlinum.

Þegar við Eiki kynntumst vorum við að vinna á sama stað. Einhvertíma áttum við að þökuleggja ákveðið svæði upp í Kaplakrika. Við gátum það bæði, en Eiki var bara svo mikli sterkari að öll erfiðis vinnan lenti á honum og ég sá um dútlið.
Við vorum á sömu launum.
Ég hef líka unnið með karlmönnum. T.d í uppvaski. Þar hefur meiri hlutinn lent á mér, sömu laun.
Svo er bara fullt af vinnum sem henta öður kyninu betur en hinu.
Og þannig er það bara.

Þetta eru mínar skoðanir.

Ég er ekki kvennréttindakona framm í fingurgóma. Ég vill bara að jafnrétti sé náð, án þess að skaða kynin. Karlmaður verður að fá að njóta sín sem karlmaður og konan verður að fá að njóta sín sem kona.

Verið nú prúð og góð. Ykkar Hulla.


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 07:43:45 / pernilla

Hvað er í gangi í þessum heimi?

Ég las um daginn bloggið hennar Önnu Ólafs úr R-nesinu, þar sem hún talar um myndina - Syndir feðrana- sem ég ætla mér að sjá vonandi fljótlega.
Það blossaði upp í  mér agaleg reiði (ekki út í Önnu samt) og ég er bara ekki að losna við þessa reiði og pirr sem er búin að vera að angra mig síðan.

Anna talar um að henni finnist undarlegt þegar er verið að dæma í kynferðisbrotamálum og fórnalömbin fá vissa upphæð. Það sé ekki hægt að verðleggja líf, sem í flestum tilfellum sé mikið skemmt og stundum algjörlega ónýtt.
Hljómar eitthvað skrýtið, en ég skil samt alveg hvað hún meinar.
Líf er ekki hægt að meta í peningum, en það eru samt akkúrat peningar sem gera okkur kleift að lifa.

Það sem mér finnst udarlegt er hvað fórmarlömbin fá yfirleitt litla upphæð. Og svínin (gerendurnir) litla dóma. Hvað skilaboð er verið að senda út í samfélagið???

Lítil vinkona mín var að fá dæmda upphæð, 1 milla.
Pabbi hennar misnotaði á allan mögulegan hátt í 10 ár!
Kynferðislegt, líkamlegt og andlegt ofbeldi voru daglegt brauð á hennar heimili frá því að hún var 8 ára og þar til hún flutti að heiman 18 ára.
Lýsingarar eru hrollvekjandi og maður hefur litla lyst á að lifa í sama heimi og svona hrottar eftir að hafa heyrt bara brot af hennar sögu. Manni langar bara að setjast niður og gráta það sem eftir er.

Pabbinn, fékk ofsalega "langan" dóm,, eða 3 og hálft ár. Hvað á það að þýða??? Ef hann er góður og prúður og gerir ekkert af sér þarna inni, sem er harla ótrúlegt, því engin börn eru á sama gangi og hann, sleppur hann sennilega með helming.

Þessi milljón sem litla vinkona mín fær hjálpar henni auðvitað helling, því hún er vikulega hjá geðlækni, hún er rétt að byrja að geta unnið núna (lítið samt) og á ofsalega langt í land.
Hún verður aldrei heil. Þetta á eftir að fylgja henni og ásækja alla ævi.

Það sem ég get engan vegin skilið er þetta.
1. Hvernig geta þeir sem dæma í svona málum fengið það af sér að dæma svona vægt?
2. Hvernig geta þeir sem leyfa sér að misnota og eyðileggja líf lítis barns, haldið áfram að lifa?
3. Hvernig má það vera að þeir sem fá bætur fyrir nefbrot, fá yfirleitt hærri bætur en þeir sem fá bætur fyrir nauðgun?

Ég gæti alveg skrifað endalaust um þetta en ætla ekki að eyða lífinu hér fyrir framan tölvuna.
Jú eitt enn.
Á sama tíma og þessari stúlku voru dæmdar milljón krónur í skaðabætur fyrir 10 ár í viðbjóði og sennilega allavega önnur 10 í uppbyggingu, fékk önnur vinkona mín bætur úr bílslysi upp á 4 milljón. Bílslysið var ekki alvarlegt sem slíkt. Engin dó og engin varð farlama.
Ég tek það framm að mér fynnst ekki 4 millur og mikið, alls ekki, og mundi fara framm á slíkt hið sama.
En er ekki eitthvað óhuggnarlegt við þetta allt saman?

Ef einhver hefur verið svo séður að taka Syndir feðrana upp á videóið sitt, (ef þau eru en til á Íslandinu) endilega láttið mig vita, væri til í að kaupa eintak.

Vona að þið eigið góðan dag og ég losni við pirrið.


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 07:31:39 / pernilla

Yfirlit.

                Til hamingju með nýja árið. 
Ég er búin að vera blogg löt og skammast mín ekkert fyrir það. En allavega kemur hér ein færsla með pínku yfirliti. 
Ykkur má ekki detta það til hugar að ég sé með svona gott minni. Neibb ég fann þessi brot með því að kíkja á gamlar færslur... Það er gjörsamlega ónýtt í mér minnið. 
Ekki innar minnið, það fúnkerar vel, ennþá. En ytra minnið er bara fokkt-op.

                                Þetta gerðist á síðasta ári.

Janúar. Fórum til Íslands með Lenu og strákana.

Febrúar. Lena litla varð 17 ára. Ég byrjaði í nýrri vinnu og fór að hreyfa mig.  

Mars. Gerðist ekkert merkilegt, nema að ég fór kannski að hreyfa mig minna. Doooh.

Apríl. Lét skrá mig sem vikar. Týndi Adda litla og við tókum þá ákvörðun að gifta okkur í júlí.

Maí. Mín átti afmæli. Fórum í fermingarveislu til köben, til Gísla Leós og hittum fullt af ættingjum Eika, æðislegt.  Fór á tónleika með Georg Michael í boði Þóru minnar.

Júní. Dana 20 og Júlli 11 ára. Darri kom til okkar. Bína kom í heimsókn og Sveinbjörg kom og fékk sér sumarvinnu hér í danaveldi. Frábært að sjá allt þetta frábæra fólk.
Ég mátaði brúðarkjól og við ákváðum hvar veislan ætti að vera. Gott ef við vorum ekki bara tímalega í því og ræddum við prestinn líka.

Júlí. Við ákváðum að prófa að unga út hænueggjum sem Bína vinkona kom með frá Íslandi. Núna er allt fulla af hænum hérna.
Pabbi, Bogga og Leónóra komu. Nokkru seinna komu svo stæðsti hlutinn af okkar fólki og vinum sem okkur þykjir svo mikið vænt um og voru hjá okkur eða allt í kringum okkur.  Við vorum með besta partý ever... tvisvar. Og við giftum okkur!!! 
Beggi litli bróðir minn söng eins og engill í kirkjunni, það var best.

Ágúst. Keypti fyrsta hrukkukremið mitt.
Vandi mig við að vera gift frú. Jóa systir kom í heimsókn.

Sept.  Strákarnir fóru í útilegu með skólanum. Ég fór í útilegu með gamla fólkinu úr vinnunni. Og bláa hryllingnum hans Eika var stolið. Og ég gaf leyfi á það... óvart.

Okt. Atli Haukur varð 13 ára. Það kom haust, án þess að kæmi almennilegt sumar. Og hann Víkingur okkar kom í heimsókn. Það var ekki leiðinlegt.

Nóv. Eikinn minn varð 30 ára, enda tími til kominn. Við fórum í lygaferð til Íslands. Og við fórum á Bubba tónleika. Bestast í heiminum.

Des. Jói minn varð 8 ára. Ég áttaði mig á því að kæmu jól, aftur á þessu ári. Bakaði piparkökuhús, sem féll af völdum raka 2 dögum seinna. Fann grátt hár og sleit það upp með rótum.
Svo komu jól og ég voða hissa. Svo komu áramót og ég svaf.

Ég horfði svo á áramótaskaupið 1.jan og komst þá að því að ég er bara nokkuð fræg.
Hann Jón Gnarr vinur minn söng lagið "þú er falleg" sem ég þýddi svo eftirminnilega
í nóvember 2005 og birti hér á blogginu, öllum til ómældrar ánægju. http://blog.central.is/blans/index.php?m=11&y=2005
Hann hefur reyndar breytt textanum örlítið, en aðal málið er að hann er minn :haha:

     
Eins og sjá má af þessari upptalningu gerist alla jafna ekkert stókostlegt í hverju mánuði hjá okkur. Reyndar tel ég ekki allt upp. Ekki það neikvæða t.d. En mér líður ekkert illa þegar er rólegt hjá okkur.

Það sem upp úr stendur samt á síðasta ári er giftingin og allt fólkið sem kom til okkar. Vinir og ættingjar. Rosalega gott að sjá ykkur. Og söngurinn hans Begga stendur jafn mikið upp úr og tónleikarnir hans Bubba.

Ég strengdi áramótaheit. Eitt eins og venjulega. Þetta eina sem ég veit að ég get staðið við,allavega hingað til. Það er að vera góð og yndisleg á þessu nýja ári.
Svo setti ég mér mál. Geri það alltaf við hliðina á strengnum. Tekst misjafnlega að ná þessum málum mínum og það er bara allt í lagi. Ég reyni a.m.k.
Málið mitt að þessu sinni er að losa okkur við allar ónauðsynlegar skuldir.  Það er ekkert erfitt. En næsta mál er erfiðara. Ég ætla að losna við umframspikið mitt sem hefur verið að safnast fyrir á miðjunni á mér siðustu 4 ár. Það ætla ég að gera fyrir 1.apríl. Það er erfitt. Og þar sem ég er ofsalega lítið fyrir erfiða hluti og hreyfingu og hvað þá að borða eitthvað sem mig langar ekki í . Eða neita mér um eitthvað sem mig langar í, þá er ég með lausn á því, eins og svo mörgu öðru. Nefnilega þetta.
Ef ég verð ennþá feitt 1.apríl, þá ætla ég að reyna að verða ólétt til að hafa afsökun fyrir því að vera feit. Það verður líka erfitt þar sem ég er í kaskó. En ég ætla a.m.k að reyna. 
Veit að það gleður hann Eika minn.

Svo er ég að hugsa um að spá aðeins í sjálfri mér. Þekki mig mest lítið og held að ég sé ekki sú sem ég hef haldið í 20 ár. 8|

Meira um það seinna. Mojn, Hulla


» 9 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 12:33:49 / pernilla

Gleðilegt ár!!

Gleðilegt ár dúllurnar mínar og farið varlega.

Mátti til með að sýna ykkur myndir af veðrinu hérna síðasta dag ársins. Þær eru teknar á símann svo þær eru langt því frá að vera góðar. En allavega...

Æ hvað er gott að búa hérna :haha:

ÁST Á YKKUR. 


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 22:56:07 / pernilla

Gleðileg jól

Við viljum óska öllum sem kíkja hingað reglulega rosalega góðra jóla og farsældar á komandi ári.

Megi gæfan og Guðjón leika við ykkur öll á næsta ári.

Lifiðu í lukku en ekki í krukku... bla bla bla

Knús Hulla


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 18:24:29 / pernilla

Besta lagið í dag

Geðveikt lag, texti og flytjandi 8|

http://youtube.com/watch?v=yR4GKcDOJ8M

Oh it seems to me
This whole world's gone crazy
And there's too much hate and killing going on
But when I see the bare chest of a woman
My worries and my problems are all gone
No one thinks of fightin'
When they see a topless girl
Any maybe if you would show yours too
We could save the world

Show them to me
Show them to me
Unclasp your bra and set those puppies free
They'd look a whole lot better without that sweater
baby, I'm sure you'll agree
If you got two fun bags
Show them to me

I don't care if they don't match
Or one's bigger than the other
You can show me one
And I'll imagine the other
Even if you're really old
There's nothing wrong
Don't be sad your boobs ain't bad
They're just alittle long

Show them to me
Show them to me
Lift up your shirt and let the whole world see
Just disrobe show your globes
And a happy man I'll be
If you got dos chi chi's
Show them to me

I've met a lot of them
But never one I've hated
Even if you've had thirteen kids
And you think they look deflated
There's no such thing as a bad breast
I believe this much is true
If your a big fat man I'm a titty fan
And I'd love to see yours too

Show them to me
Show them to me
Just like the Girls Gone Wild on TV
Just lean back and show your rack
And I'll be in ecstasy
If you got two Kasaba's
Show them to me

All the world will live in harmony
It'll do ya good and it'll give me wood
And we'll make history
If you love your country
I'm going to say it one more time...
I said If you love your country Yeah...

Then stand up your ass up and show those big ole tittes to meee
(Show them to me)


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 13:56:02 / pernilla

Krútt family

Við þessi krúttlega fjölskylda skelltum okkur í Danfoss univers í gær þegar ég var búin að vinna. Þanngað verðu sko pottþétt farið aftur þegar fer að hlýna og vora.

Eftir nokkra klukkutíma þar fórum við svo á Mc Donalds, sem er ekki í uppáhaldi hjá mér. En strákunum finnst bara voða gott að fara þanngað og hvað gerir maður ekki fyrir þessa snáða.

Klukkan 8 í gærkvöldi skelltum við okkur svo í musikmessu í Ullerup. Það er í fyrsta sinn síðan við giftum okkur sem við förum í messu 8| Ekki svo að skilja að við höfum verið eitthvað rosa dugleg við það áður en við giftum okkur, en mér finnst voða afslappandi að sitja inn í kirkju og gera ekki neitt. Þá er maður líka löglega afsakaður fyrir að vera ekki búin með ákveðin verkefni. "Hva,,, ég var í messu"!!!

Dana, Hanne og Lena komu í mat til okkar á föstudagskvöldið. Við vorum með lambalæri sem var á stærð við kálfslæri og ég ætlaði aldrei að geta komið þvi inn í ofninn.
Matarlystin hjá minni hefði alveg mátt vera meiri, en þar sem ég var að jafna mig eftir viðurstyggilega gubbu kom ég ekki svo miklu niður. En það er liðið hjá núna og ég er farin að geta borðað á við 3 eins og ég er vön :haha:

Sé framm á mikla vinnu rest af desember og framm í nóvember á næsta ári. Þá ætla ég líka að slappa af og gera ekki neitt í heila viku!

Ætla að ráðast á þvottafjallið sem er búið að vera að myndast hjá mér síðustu daga.
Læt heyra frá okkur fyrir jól.

Knús og kossar. Hulla

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 09:25:51 / pernilla

Ógó fynndið

Mátti til að settja inn þennan link http://hrodmar.blog.is/blog/hrodmar/ 

Þetta er það fyndnasta sem ég hef lesið í langan tíma og þessi lesning er hreinlega búin að bjarga mér og minni geðheilsu meðan ég ligg hérna og rembist við að láta mér batna -fyrir jól-Endilega lesið öll kommentin líka. Brjálæðislega fyndið.
Ég er allavega búin að hlægja eins og vitlaus þrátt fyrir heldur óþægilega magakrampa.

Gleðilega helgi. Hulla


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 08:45:38 / pernilla

Jóhann 8 ára!!!

Þá eru liðin 8 ár frá því að ég fæddi síðasta barn. Fynnst það gera mig dálítið gamla.
Yngsta barnið mitt er 8 ára 8|.

Ég var ekkert lítið búin að bíða eftir að hann Jói kæmi í heiminn. Alla síðari hluta meðgöngunar, voru ljósur og læknar búnir að hræða mig með því að barnið væri of lítið og væri ekki að nærast nóg. Ég var tví- eða þrívegis lögð inn á spítala í fitunn. Átti að liggja upp í rúmi og éta í nokkra daga. Svo fékk ég að fara heim að því loknu.
Svo var það 8 nóvember að ég fór í gang. Minnir að ég hafi legið inni akkúrat þá í fitunn. A.m.k var ég send 1,2 og 3 í bæinn því ljósmóðurinni á Selfossi fannst ég öruggari á lansanum.
Þegar þanngað var komið og búið að skoða mig bak og fyrir, var mér komið fyrir í frekar hörðu og óþægilegu rúmi. Ég með mína grindargliðnun var ekki að geta látið fara vel um mig þarna. 3-4 í útvíkkunn og þær reiknuðu með barninu hvað úr hverju.
Sú sem tók á móti okkur inn á lansa var sú sama og kom heim til mín eftir að ég átti Atla Hauk, og mundi eftir mér. Hún sagðist ekki fara af vaktinni fyrr en barnið væri komið og það fannst mér voðalega vænt um. Það er fátt meira böggandi en vaktaskipti í miðri fæðingu.

Mér fannst eitthvað lítið fara fyrir verkjum og þeir sem komu fóru beinustu leið í bakið á mér.
Þegar ég var búin að liggja í ca 3-4 tíma bað ég um að fá að fara heim. Var ekki að nenna þessu. Fann að mest lítið var að gerast hjá mér.
Ég hafði aðeins verið 2-3 tíma frá fyrstu verkjum að eignast hin börnin mín, og fannst ég ekki vera að gera neitt gagn þarna.  Sonur minn var bara greinilega ekkert að standa í þessu núna.

Þegar bakverkurinn var að gera útaf við  mig (aldrei áður fengið í bakið;) bað ég loksins um panodil. Tek það framm að þarna hafði ég gengið í gegnum 4 fæðingar án þess að fá verkalyf, en þessa bakverki var ég bara ekki að halda út. Ljósan sagði nú að panodil mundi ekki hafa neitt að segja. Svona væri þetta bara. Sumar konur fengju alla verki í bakið.
20 mínútum síðar var ég verkjalaus. Fékk leyfi til að fara heim til tengdamömmu og pabba með því skilyrði að ég kæmi upp á spítala í tékk næsta dag.

Það sem ég vissi ekki þá, var að um leið og ég var farin, kom inn Bára frænka hans Eika, fékk afhent rúmið sem ég hafði notað nokkrum mínútum áður, og eignaðist sitt fyrsta barn þar. :haha:

Eftir tékk á spítalanum daginn eftir fékk ég að fara heim með þeim skilmálum að ég mundi taka því rólega, því ég var komin með 4-5 í útvíkkun og barnið að koma. Því lengur sem ég gæti "haldið" því í mér, því betra.

Rúmum mánuði síðar kom Jói svo í heiminn. :haha:
Jóa systir bjó hjá okkur á þessu tímabili. Hún var að flytja að austan og til Stokkseyrar og það sem var gott að afa hana. Eiki fékk að borða á hverjum degi :haha: og allt sem ég mátti ekki gera, eða gat ekki,  tók hún að sér með bros á vör.

Um klukkan 3 um nóttina vaknaði ég með verki, og vatnið farið að leka.
Það er dálítið merkilegt að eins og maður er búin að bíða eftir að allt fari í gang, þá er maður samt engan veginn tilbúin þegar loksins kemur að því.
Ég staulaðist inn í stofu o vakti Jóu og spurði hvort hún nennti nokkuð að passa rétt á meðan ég mundi skjótast upp á spítala.
Hún frekar svefndrukkinn, sagði mér að hafa ekki áhyggju og drífa mig bara. Svo var hún sofnuð aftur. Held að hún hafi aldrei verið vakandi :D
Við Eiki brunuðum allavega upp á spítala og Jói minn var kominn í heiminn um 5.

                         

                             

                               

Hann fékk svo nafnið hans afa míns, en ég ætla ekki að segja frá því núna hvernig það gekk til.

Við Jói bökuðum piparkökuhús um síðustu helgi.

  

Ekki góðar myndir :^)
Húsið féll svo í fyrradag vegna raka. Já það er svo mikill raki hérna inni að húsið okkar mýktist allt upp og lak svo saman.
Ég er brjáluð.

Ég er búin að vera með vibba flensu síðan síðustu nótt með hita, magakrampa og innihald magans hefur lekið út um hin ýmsu göt. Svo hald ég að gallblaðran mín sé eitthvað að klikka. Mér er búið að vera voða illt í henni.

Verið góð. Knús... Hulla

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 09:59:49 / pernilla

Engar fréttir

Smá færsla áður en ég dembi mér í smáköku og/eða kleinu bakstur.

Á miðvikudagskvöldið fór ég á jólahlaðborð með vinnunni minni. Held bara að það sé í eina skiptið eftir að ég flutti hingað út fyrir tæpum 4 árum sem ég fer ein eitthvað.
Þetta var voðalega gaman, þrátt fyrir að ég ætti að mæta í vinnu daginn eftir.
Ég finn samt að ég er orðin hálf heft í samskiptum.
Mér finnst líka allt öðruvísi að fara út með hópi af konum, heldur en með köllum.
Karlar skemmta sér allt öðruvísi, og eru öðruvísi félagsskapur. Kannski er ég bara svona mikill hommi 8|
Það var aðeins einn karl með í þessum 21 manns hóp, og hann átti fullt í fangi með að færa sig á milli stóla og tala við allar kvennsurnar.
Hann sagði mér t.d allt um símafyrirtæki 8| Og svo talaði hann helling um skatta og útgjöld.
Ég held að hann sé orðinn dálítið skemmdur á því að vinna bara með konum. Hehehehe
Hann er samt bara indæll og ég er alls ekki að setja út á hann. Bara fyndið hvað karlar og konur skemmta sér á misjafnan hátt. Og tala um mismunandi hluti.

Annars er mest lítið að frétta héðan.
Við erum aðeins byrjuð að jólast, og nú er stressið að hellast yfir.
Vorum að spá í að vinna í lottóinu um síðustu hlegi, en hættum greinilega við, þegar tölurnar birtust. 
Hefði svo vel getað notað þessar 21 milljónir sem voru í pottinum :D

Um síðustu helgi fórum við í bíó með strákana.
Það var ofsalega fynndið.
Þetta er í fyrsta sinn sem ég fer í bíó í Danmörku. Miðasalan og sjoppan er eitt og aðeins ein manneskja í afgreiðslunni. Sem var líka alltí lagi því það var ekki mikið af fólki. Enda ekki pláss fyrir marga.
Einn salur með kannski 12 röðum og ca 8 sæti í hverri röð :D
Eitthvað annað en maður kannast við að heiman.
Danir eru greinilega ekki eins miklar bíó verur og íslendingar.

Vá hvað ég hef ekkert að segja... Kveð bara núna og verið góð.
Hulla


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 22
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 17 febrúar